Hljóð og myndefni

Undir hljóð- og myndefni falla kvikmyndir, sjónvarpsþættir og tónlist. Grunnsniðið er tvenns konar, eftir því hvort vísað er til verksins í heild eða hluta verksins. Kvikmyndir falla undir það fyrrnefnda en sjónvarpsþættir og stök sena úr kvikmynd undir það síðarnefnda. Grunnsnið fyrir hluta verks miðar að sjónvarpsþætti en neðar má sjá dæmi um vísun í tónlist.

Með miðli er átt við það margmiðlunarform sem kvikmyndin er á (geisladiskur, DVD-diskur, VHS-spóla eða annað).

Ef vitnað er í sjónvarpsþætti sem sýndir eru á streymisveitu frekar en á DVD eða Blu-Ray t.d., skal skipta út upplýsingunum á eftir dagsetningu frumsýningar fyrir vefslóð. Til dæmis, ef Star Trek þátturinn hér að neðan er frá Netflix í stað þess að vera á Blu-Ray, myndi „https://www.netflix.com/watch/70177897“ koma í stað “Paramount, 2012, Blu-Ray”.

Dæmi

Löng tilvísun

Titill, Nafn leikstjóra/listamanns, leikstjóri/listamaður (útgáfuár; borg: framleiðslufyrirtæki), miðill.

Stutt tilvísun

Titill, ártal.

Heimildaskrá

Nafn leikstjóra/listamanns, leikstjóri/listamaður. Titill. Upphaflegt útgáfuár; framleiðslufyrirtæki, útgáfuár myndbands. Miðill.

 

Dæmi

Langar tilvísanir

1. Kona fer í stríð, Benedikt Erlingsson, leikstjóri (2018; Slot Machine og Gulldrengurinn ehf, 2018), DVD.

Stuttar tilvísanir

2. Kona fer í stríð, 2018.

Heimildaskrá

Benedikt Erlingsson, leikstjóri. Kona fer í stríð. 2018; Slot Machine og Gulldrengurinn ehf, 2018. DVD.

Löng tilvísun

Titill verks, þáttanúmer, „Titill þáttar,“ Nafn leikstjóra, leikstjóri; Nafn handritshöfundar, handritshöfundur; Nafn leikara, leikarar, frumsýnt dagur, mánuður, ártal, útvarps/sjónvarpskeðja, vefslóð

Stutt tilvísun

Titill verks, ártal.

Heimildaskrá

Nafn leikstjóra, leikstjóri. Titill verks. Seríunúmer, þáttanúmer, „Titill þáttar.“ Frumsýnt dagur, mánuður, ártal, Útvarps/sjónvarpskeðja, vefslóð.

 

Dæmi

Langar tilvísanir

1. Star Trek: The Next Generation, sería 2, þáttur 9, “The Measure of a Man,” Robert Scheerer, leikstjóri; Melinda M. Snodgrass, handritshöfundur; Patrick Stewart, Brent Spiner og Whoopi Goldberg, leikarar, aired February 13, 1989, in broadcast syndication, Paramount, 2012, Blu-Ray.

Stuttar tilvísanir

2. Star Trek: The Next Generation, 1989.

Heimildaskrá

Snodgrass, Melinda M, handritshöfundur. Star Trek: The Next Generation. Sería 2, þáttur 9, “The Measure of a Man.” Robert Scheerer, leikstjóri; Patrick Stewart, Brent Spiner, og Whoopi Goldberg, leikarar. Frumsýnt 13. febrúar, 1989, í sjónvarpsútsendingu. Paramount, 2012, Blu-Ray.

Dæmi

Langar tilvísanir

1. Bob Dylan, “Workingman’s Blues #2,” tekið upp í febrúar 2006, lag 3 á Modern Times, Columbia, geisladiskur.

Stuttar tilvísanir

2. Bob Dylan, 2006

Heimildaskrá

Dylan, Bob. “Workingman’s Blues #2.” Tekið upp í febrúar 2006. Lag 3 á Modern Times. Columbia, geisladiskur.

Grunnsnið

Löng tilvísun

Höfundur, "Titill myndbands", Heiti vefs, dagsetning, miðill, spilunartími, vefslóð

Stutt tilvísun

Höfundur, "Titill myndbands."

Heimildaskrá

Höfundur. "Titill myndbands." Heiti vefs. Dagsetning. Miðill, spilunartími. Vefslóð

 

Dæmi

Langar tilvísanir

1. Hlvarp, "Háskólinn í hnotskurn árið 2019", Youtube, 16. júní 2020, myndband, 4:16, https://www.youtube.com/watch?v=1pOnNWb9-Bs

 

Stuttar tilvísanir

2. Hlvarp, "Háskólinn í hnotskurn".

 

Heimildaskrá

Hlvarp. "Háskólinn í hnotskurn árið 2019." Youtube. 16. júní 2020. Myndband, 4:16. https://www.youtube.com/watch?v=1pOnNWb9-Bs

Grunnsnið

Löng tilvísun

Höfundur, "Númer þáttar: Titill þáttar", dagsetning, í Titill hlaðvarps, framleitt af Nafn framleiðslufyrirtækis, miðill, spilunartími, vefslóð 

Stutt tilvísun

Höfundur, "titill þáttar."

Heimildaskrá

Höfundur. "Númer þáttar: Titill þáttar." Nafn framleiðanda. Titill hlaðvarps. Dagsetning. Miðill, spilunartími. Vefslóð

 

Dæmi

Langar tilvísanir

1. Vera Illugadóttir, "Tenerife-slysið", 15. maí 2020, Í Í ljósi sögunnar, framleitt af RÚV, hlaðvarp, 38:57, https://www.ruv.is/utvarp/spila/i-ljosi-sogunnar/23795/7hqkpt

 

Stuttar tilvísanir

2. Vera Illugadóttir, "Tenerife-slysið."

 

Heimildaskrá

Vera Illugadóttir. "Tenerife-slysið." RÚV. Í ljósi sögunnar. 15. maí 2020. Hlaðvarp, 38:57. https://www.ruv.is/utvarp/spila/i-ljosi-sogunnar/23795/7hqkpt

Viðtölum er raðað eftir viðmælanda, ekki þeim sem tók viðtalið.

 

Löng tilvísun

Viðmælandi, „Titill viðtals,“ viðtalið tók Nafn, Titill þáttar/myndar/efnis þar sem viðtalið kom fram, framleiðandi, dagsetning, hljóð eða hljóð og mynd, spilunartími, vefslóð.

Stutt tilvísun

Viðmælandi, viðtal.

Heimildaskrá

Viðmælandi. „Titill viðtals.“ Viðtalið tók Nafn. Titill þáttar/myndar/efnis þar sem viðtalið kom fram, framleiðandi, dagsetning. Hljóð eða Hljóð og mynd, spilunartími. Vefslóð.

 

Dæmi

Löng tilvísun
1. Joy Buolamwini, „ ‘If You Have a Face, You Have a Place in the Conversation About AI,’ Expert Says,“ viðtalið tók Tonya Mosley, Fresh Air, NPR, 28. nóvember 2023, hljóð, 37:58, https://www.npr.org/2023/11/28/1215529902/unmasking-ai-facial-recognition-technology-joy-buolamwini.

Stutt tilvísun
2. Buolamwini, viðtal.

Heimildaskrá
Buolamwini, Joy. „ ‘If You Have a Face, You Have a Place in the Conversation About AI,’ Expert Says.“ Viðtalið tók Tonya Mosley. Fresh Air, NPR, 28. nóvember 2023. Hljóð, 37:58. https://www.npr.org/2023/11/28/1215529902/unmasking-ai-facial-recognition-technology-joy-buolamwini.