Efni á netinu
Efni á netinu verður sífellt algengara og má finna í margskonar formi. Hér undir má finna snið fyrir vefsíður og blogg, samfélagsmiðla, PowerPoint glærur og hljóð- og myndefni af netinu.
Vísun í samfélagsmiðla er heldur nýtilkomið form og getur innihaldið óhefðbundið málfar og stafsetningu, slóðir, myllumerki og tjákn. Titillinn, sem skal vera allt að fyrstu 20 orð færslunnar, skal haldið í upprunalega forminu, eins og hægt er, með tjáknum, myllumerkjum o.þ.h.
Vísun í helstu miðla fyrir hljóð- og myndefni, eins og kvikmyndir, sjónvarpsþætti og hlaðvörp, má finna hér að neðan en nánari upplýsingar um höfunda hljóð- og myndefnis má finna hér [höfundarsætið > nöfn höfunda].
Snið fyrir annað rafrænt efni, eins og bækur á netinu, rafrænar tímaritsgreinar, uppflettiorð í rafrænni orðabók o.s.frv. má finna undir viðeigandi flokki.
Öll dæmin nota einn höfund. Upplýsingar um marga höfunda hérna.
Dæmi
Snið A: Youtube
Nafn höfundar/hóps sem setti inn myndbandið. (ártal, dagur. mánuður). Titill myndbands [myndband]. Heiti vefsíðu. www.xx
Snið B: Ted fyrirlestur
Nafn höfundar. (ártal, dagur. mánuður). Titill fyrirlestrar [myndband]. Heiti vefsíðu. www.xx
Snið C: Hlaðvarp
Nafn aðalframleiðanda (aðalframleiðandi/umsjónarmaður). (tímabil útgáfu). Titill hlaðvarps [hlaðvarp]. Nafn framleiðslufyrirtækis. www.xx
Snið D: Kvikmynd
Nafn leikstjóra (leikstjóri). (ártal). Titill kvikmyndar [kvikmynd]. Nafn framleiðslufyrirtækis.
Snið E: Sjónvarpsþáttasería
Nafn aðalframleiðanda (aðalframleiðandi). (ártal). Titill sjónvarpsþáttasería [sjónvarpsþáttasería]. Nafn framleiðslufyrirtækis.
Tilvísanir
(Baltasar Kormákur og Magnús Viðar Sigurðsson, 2015) eða Baltasar Kormákur og Magnús Viðar Sigurðsson (2015)
(Guðný Halldórsdóttir, 2002) eða Guðný Halldórsdóttir (2002)
(Háskóli Íslands, 2020) eða Háskóli Íslands (2020)
(Vedantam, 2015-enn í gangi) eða Vedantam (2015-enn í gangi) (Wilson, 2020) eða Wilson (2020)
Fyrir nánari upplýsingar um höfunda hljóð- og myndefnis sjá hér [höfundarsætið > nöfn höfunda]
Heimildaskrá
Baltasar Kormákur og Magnús Viðar Sigurðsson (aðalframleiðendur). (2015). Ófærð [sjónvarpsþáttasería]. RVK Studios.
Guðný Halldórsdóttir (leikstjóri). (2002). Stella í framboði [kvikmynd]. Umbi.
Háskóli Íslands. (2020, 16. júní). Nýsköpun í kennslu – tekist á við COVID-19 [myndband]. Youtube. https://www.youtube.com/watch?v=kEEEXrl8Tig
Vedantam, S. (umsjónarmaður). (2015- enn í gangi). Hidden brain [hlaðvarp]. NPR. https://www.npr.org/series/423302056/hidden-brain?t=1593596353675
Wilson, R. (2020, maí). My secret to staying focused under pressure [myndband]. TED. https://www.ted.com/talks /russell_wilson_my_secret_to_staying_focused_under_pressure
Snið A: Tíst á Twitter
Nafn höfundar/hóps [@notendanafn]. (ártal, dagur. mánuður). Titill tísts allt að tuttugu orð [tíst]. Heiti vefsíðu. www.xx
Snið B: Mynd eða myndband á Instagram
Nafn höfundar/hóps [@notendanafn]. (ártal, dagur. mánuður). Titill myndar/myndbands allt að tuttugu orð [tegund efnis]. Heiti vefsíðu. www.xx
Snið C: Facebook-færsla
Nafn höfundar/hóps. (ártal, dagur. mánuður). Titill færslu allt að tuttugu orð [tegund færslu]. Heiti vefsíðu. www.xx
Ef Facebook-færsla inniheldur myndir, myndbönd, vefslóð eða efni úr annarri Facebook-færslu (t.d. sem verið er að deila) skal það tekið fram í hornklofa á eftir titli færslu. Ef færslan inniheldur tjákn (e. emoji) skal þeim haldið ef hægt er.
Tilvísanir
(Alþingi, 2018) eða Alþingi (2018)
(Menntavisindasvid, 2020) eða Menntavisindasvid (2020)
(Ritver Háskóla Íslands, 2020) eða Ritver Háskóla Íslands (2020)
Heimildaskrá
Alþingi [@Althingi]. (2018, 18. júlí). Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, flytur ræðu á hátíðarfundi á Þingvöllum [tíst]. Twitter. https://twitter.com/althingi/status/1019601151304531968
Menntavisindasvið [@menntavisindasvid]. (2020, 10. júní). Við flytjum! Nýtt framtíðarhúsnæði Menntavísindasviðs mun rísa í Vatnsmýrinni innan fjögurra ára [mynd]. Instagram. https://www.instagram.com/p/CBQzoIOg-2w/
Ritver Háskóla Íslands. (2020, 1. júlí). Ritverið er komið í sumarfrí. Hafið það gott í sumar og sjáumst aftur í ágúst [áföst mynd] [stöðuuppfærsla]. Facebook. https://www.facebook.com/ritverhi/photos/a.1453538508201079/2589471497941102/
Snið: PowerPoint glærur
Nafn höfundar. (ártal, dagur. mánuður). Titill glæra [PowerPoint glærur]. Heiti vefsíðu. www.xx
Tilvísun
(Gústaf Steingrímsson, 2018) eða Gústaf Steingrímsson (2018).
Heimildaskrá
Gústaf Steingrímsson. (2018, 31. október). Ferðaþjónustan hefur náð flughæð [PowerPoint glærur].
Landsbankinn. https://umraedan.landsbankinn.is/Uploads/Documents/Umraedan/Radstefnur/Hagspa-2018/Hagspa-2018-glaerur-Gustaf.pdf
Snið A: Vefsíður
Nafn höfundar. (ártal, dagur. mánuður). Titill greinar eða undirsíðu. Heiti vefsiðu. www.xx
Snið B: Blogg
Nafn höfundar. (ártal, dagur. mánuður). Titill færslu [bloggfærsla]. Heiti bloggsíðu. www.xx
Stundum getur átt við að skrá heiti vefsvæðis í höfundarsæti. Þetta á við ef ekki kemur skýrt fram hver er höfundur eða hver er ábyrgur fyrir vefsvæðinu eða efninu sem þar er birt. Ef enginn höfundur er skráður er nafn vefsíðunnar sett í höfundarsætið. Þá skráðum við nafn vefsíðunnar eingöngu þar og ekki í titilsætið.
Tilvísanir
(Eiríkur Rögnvaldsson, 2019) eða Eiríkur Rögnvaldsson (2019)
(Hagstofa Íslands, e.d.) eða Hagstofa Íslands (e.d.)
(Háskóli Íslands, e.d.) eða Háskóli Íslands (e.d.)
(Lesvefurinn, 2007–2008) eða Lesvefurinn (2007–2008)
(Magnús Þorkelsson, 2012) eða Magnús Þorkelsson (2012)
(Skólavefurinn.is, 2000) eða Skólavefurinn.is (2000)
(Steinunn Torfadóttir, 2007–2008) eða Steinunn Torfadóttir (2007–2008)
(Stefán Gíslason, 2021) eða Stefán Gíslason (2021)
Heimildaskrá
Eiríkur Rögnvaldsson. (2019, 20. nóvember). Hver eru kynjahlutföll orða í íslensku? Vísindavefurinn. https://www.visindavefur.is/svar.php?id=77754
Hagstofa Íslands. (e.d.). Grunnskólanemendur með erlent móðurmál 1997-2012. http://hagstofa.is/PageID=2604&src=/temp/Dialog/varval.aspma=SKO02103%26ti=Grunnsk%F3lanemendur+me%F0+erlent+m%F3%F0urm%E1l+1997%2D2012+%26path=../Database/skolamal/gsNemendur /%26lang=3%26units=Fj%F6ldi/hlutfall
Háskóli Íslands. (e.d.). Forsíða. http://www.hi.is
Lesvefurinn. (2007–2008). Um vefinn. http://lesvefurinn.hi.is/um_vefinn
Magnús Þorkelsson. (2012, 13. ágúst). Brottfall er samfélagslegt vandamál. http://www.hi.is/brottfall_er_samfelagslegt_vandamal
Skólavefurinn. (2000). Samfélagsfræði. http://skolavefurinn.is/_opid/_valmynd/samfelagsfraedi/index.htm
Steinunn Torfadóttir. (2007–2008). Þróun lestrar. Lesvefurinn. http://lesvefurinn.hi.is/throun_lestrar
Stefán Gíslason. (2021, 22. ágúst). Sól á Trékyllisheiði [bloggfærsla]. Bloggsíða Stefáns Gíslasonar. https://stefangisla.com/2021/08/22/sol-a-trekyllisheidi/
Snið
Titill efnis. (ártal, dagur. mánuður). Wikipedia. www.xx
Hér er titilsæti skáletrað því litið er á að Wikipedia sé rafræn alfræðiorðabók frekar en vefur. Nánar um skáletur titilsætis.
Almennt er ekki mælt með því að vísað sé í efni af Wikipedia í fræðilegum skrifum.
Tilvísun
(uppeldisfræði, 2012) eða uppeldisfræði (2012)
Heimildaskrá
Uppeldisfræði. (2012). Wikipedia. http://is.wikipedia.org/wiki/Uppeldisfræði
Fjallað er um notkun gervigreindar í námi við Háskóla Íslands á sérstökum vef en nemendur skulu gæta þess að ráðfæra sig við kennara ef þeir hyggjast nýta gervigreind í skrifum sínum.
Í texta skal því lýst hvernig gervigreindin var notuð, hvaða skipun nemandinn gaf og hvaða texti kom til baka.
Texta sem búinn er til af gervigreind á að vísa til með sama hætti og hugbúnaðar skv. APA staðlinum.
Tilvísun
(OpenAI, 2023)
Heimildaskrá:
OpenAI. (2023). ChatGPT (14. mar. útgáfa) [Risamállíkan]. https://chat.openai.com/chat