Verkefnavaka gegn frestunarpest og ritkvíða verður haldin fimmtudaginn 24. mars kl. 18 – 22 í Þjóðarbókhlöðunni. 

Í boði verður dagskrá fyrir alla nema Háskóla Íslands sem eru með verkefni í smíðum, smá eða stór, námskeiðsverkefni eða lokaverkefni. Á Verkefnavökunni gefst gott tækifæri til þess að vinna í verkefnum eina kvöldstund í góðum félagsskap. 

  • Styrkjandi leiðsögn sérfræðinga um allt það sem viðkemur verkefnaskrifum. 
    • Ritver – aðstoð við fræðileg skrif 
    • Náms- og starfsráðgjöf – hagnýt ráð varðandi skipulag og fleira tengt verkefnavinnu og vellíðan 
    • Bókasöfn Háskóla Íslands – aðstoð og leiðbeiningar við heimildaleit og fleira 
  • Hættu að blaðra og skrifaðu! 
    • Vinnustofa þar sem setið er við skrif í þögn í 40 mínútur í senn 
  • EndNote aðstoð 
    • Vinnustofa fyrir þá sem eru að nota heimildaskráningarforritið EndNote og eru í einhverjum vandræðum 
  • Leiðbeiningar um skil í Skemmuna 
    • Farið í gegnum ferlið, yfirlýsinguna um meðferð lokaverkefna og fleira 

Dagskrá vökunnar er að vinna í leiðarvísi hennar á leiðarvísar.is. 

Markmið verkefnavökunnar eru: 

  • að gefa nemum færi á að vinna að verkefnum sínum utan hefðbundins vinnutíma eina kvöldstund og fá aðstoð og hvatningu frá jafningjum, kennurum eða öðrum starfsmönnum Háskólans, 
  • að vekja athygli á þeim mikla vanda í háskólum heimsins að fjöldi stúdenta kvíðir því að skrifa og margir hverfa frá námi þegar lokaverkefnið eitt er eftir 
  • að vekja athygli á að unnt er að aðstoða höfunda á öllum stigum ritunarferlisins og hjálpa þeim að komast af stað sem frestað hafa verkefnum of lengi. 

Að verkefnavökunni standa Ritver og Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands, bókasafn Menntavísindasviðs, Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Heilbrigðisvísindabókasafn LSH og HÍ. 

Allir velkomnir!