Snið A: Tíst á Twitter

Nafn höfundar/hóps [@notendanafn]. (ártal, dagur. mánuður). Titill tísts allt að tuttugu orð [tíst]. Heiti vefsíðu. www.xx

Snið B: Mynd eða myndband á Instagram

Nafn höfundar/hóps [@notendanafn]. (ártal, dagur. mánuður). Titill myndar/myndbands allt að tuttugu orð [tegund efnis]. Heiti vefsíðu. www.xx

Snið C: Facebook-færsla

Nafn höfundar/hóps. (ártal, dagur. mánuður). Titill færslu allt að tuttugu orð [tegund færslu]. Heiti vefsíðu. www.xx

Ef Facebook-færsla inniheldur myndir, myndbönd, vefslóð eða efni úr annarri Facebook-færslu (t.d. sem verið er að deila) skal það tekið fram í hornklofa á eftir titli færslu. Ef færslan inniheldur tjákn (e. emoji) skal þeim haldið ef hægt er.

Heimildaskrá

Alþingi [@Althingi]. (2018, 18. júlí). Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, flytur ræðu á hátíðarfundi á
     Þingvöllum
[tíst]. Twitter. https://twitter.com/althingi/status/1019601151304531968

Menntavisindasvið [@menntavisindasvid]. (2020, 10. júní). Við flytjum! Nýtt framtíðarhúsnæði Menntavísindasviðs
     mun rísa í Vatnsmýrinni innan fjögurra ára 
[mynd]. Instagram. https://www.instagram.com/p/CBQzoIOg-2w/

Ritver Háskóla Íslands. (2020, 1. júlí). Ritverið er komið í sumarfrí. Hafið það gott í sumar og sjáumst aftur í ágúst    [áföst mynd] [stöðuuppfærsla]. Facebook. https://www.facebook.com/ritverhi/photos/a.1453538508201079/2589471497941102/

Tilvísanir:

(Alþingi, 2018) eða Alþingi (2018)

(Menntavisindasvid, 2020) eða Menntavisindasvid (2020)

(Ritver Háskóla Íslands, 2020) eða Ritver Háskóla Íslands (2020)

Deila