Inngangur
Höfundur ritgerðar hefur eitt tækifæri til að fanga athygli lesandans og það er í innganginum.
Í inngangi kynnir höfundur ritgerðina fyrir lesandanum. Hér þarf að segja frá efnistökum, rannsóknarspurningum helstu niðurstöðum og stundum er fjallað um uppbyggingu ritgerðarinnar.
Ýmsar leiðir eru færar í þessum efnum en algengt er að byrja ritgerðir til dæmis á spurningu sem vekur til umhugsunar, bakgrunni eða rótum viðfangsefnisins, ögrandi fullyrðingu eða tilvitnun.
Gott er að byrja innganginn frekar vítt og leiða lesandann þannig inn í viðfangsefnið. Það getur verið erfitt að lesa ritgerð sem hefur ekki verið sett nægjanlega vel í stærra samhengi.
Höfundur segir jafnframt frá rannsóknarspurningum sínum eða tilgátum og helstu niðurstöðum í stuttu máli í innganginum.
Stundum setja höfundar fram yfirlit um uppbyggingu ritgerðarinnar og þess sem vænta má í hverjum kafla. Þetta er yfirleitt eingöngu gert í lengri ritsmíðum þar sem meginmálinu er skipt í nokkra kafla. Sé þessi leið farin fer best á því að þetta sé gert í síðustu efnisgrein inngangsins.
Dæmi
- Í ljósi niðurstaðna okkar má draga þá ályktun...
- Þessi rannsókn veitir innsýn í kenningar/sögu/þróun/X...
- Niðurstöður rannsóknarinnar geta meðal annars nýst á sviði...
- Slíkar niðurstöður eru áhugaverðar fyrir X og geta stuðlað að Y...
- Rannsóknirnar sem hér liggja til grundvallar eru um margt einstæðar...
- Þessi rannsókn er fyrsta ítarlega athugunin á X...
- Þessi rannsókn mun stuðla að auknum skilningi á kenningum/hugtökum/hugmyndum/X...
- Skilningur á sambandinu á milli X og Y mun...
- Niðurstöður rannsókna á tengslum X og Y hafa leitt í ljós...
- Í rannsóknum á sviði X hefur verið rætt um Y
- Í öðrum rannsóknum hefur verið bent á...
- Í annarri rannsókn, þar sem gert var mat á X, kom í ljós Y.
- Fjöldi rannsókna hefur sýnt fram á...
- Aðrar rannsóknir hafa sýnt að...
- ...þó svo aðrar rannsóknir hafi sýnt hið gagnstæða.
- Í sambærilegum rannsóknum hefur...
- Niðurstöður X rannsókna benda til...
- ...rannsóknir hafa leitt í ljós svipuð tengsl...
- ...eins og erlendar rannsóknir hafa sýnt.
- Þessar niðurstöður eru í samræmi við erlendar rannsóknir...
- Markmiðið rannsóknarinnar var að kanna...
- Markmið hennar er fyrst og fremst að...
- Markmið rannsóknarinnar er annars vegar X og hins vegar Y.
- Í þessari rannsókn er gerð tilraun til að...
- Annars vegar erum við að skoða orðræðu um X og hins vegar um Y.
- Gögnum var safnað með því að...
- Skrif fimm höfunda verða greind...
- Gerð var eigindleg rannsókn á einu tilviki/tilviksrannsókn...
- Gögnin sem notuð voru í rannsókninni eru ferns konar...
- Með því að nota eigindlegar rannsóknaraðferðir, hef ég reynt að varpa ljósi á...
- Rannsóknin var framkvæmd með bæði eigindlegum og megindlegum aðferðum...
- Megindlegar aðferðir voru notaðar til að gefa yfirlit um X en eigindlegar aðferðir til að kanna nánar einstaka þætti...
- Í fyrsta hluta er gerð grein fyrir því hvernig hugtökin...
- Hugtakið X verður notað í merkingunni 'x' í þessari ritgerð...
- Í fyrsta hluta er útskýrt...
- Í fyrsta kafla þessarar greinar er því haldið fram að...
- Í fyrsta kafla bókarinnar er gerð grein fyrir helstu hugtökum
- Í öðrum kafla er fjallað um..
- Í öðrum kafla er farið nánar í saumana á...
- Í öðrum kafla eru fyrst tekin nokkur dæmi... og síðan...
- Annar kafli er fræðilegt yfirlit þar sem athyglinni er beint að...
- í þriðja kafla eru X athuguð hver fyrir sig, og færð rök fyrir þeirri niðurstöðu að...