Ef gæsalappir eru í titlum heimilda haldast þær óbreyttar í heimildaskrá.

 

Dæmi

North, S. M. (2011). Revisiting “The idea of a writing center”. Í C. Murphy og S. Sherwood (ritstjórar), The St. Martinʼs sourcebook for writing tutors (4. útgáfa, bls. 58–70). Bedford.

Anna Magnea Hreinsdóttir. (2009). „Af því að við erum börn“: Lýðræðislegt umræðumat á menntun barna og þjónustu fjögurra íslenskra leikskóla [doktorsritgerð]. https://hdl.handle.net/1946/4331

Titlar í lesmáli, sem ekki eru skáletraðir í heimildaskrá, eru hafðir innan gæsalappa.

 

Dæmi

Í kvæðinu „Vornótt“ kemur fram …

Í greininni „Race, Culture and Ethnicity in Minority Research: A Critical Discussion“ segir höfundur frá því…

Í greininni „starfshæfni kennara frá sjónarhóli norrænna kennaranema” er fjallað um…

  • Gæsalappir eru notaðar til að afmarka stuttar orðréttar tilvitnanir (beinar tilvitnanir). Sjá: Langar og stuttar tilvitnanir.
  • Stundum eru gæsalappir notaðar til að afmarka vafasama orðmynd eða slettu í texta þegar höfundur hefur ekki betra orð á takteinum.
Deila