Uppsetning og röð heimilda
- Heimildum á að raða í stafrófsröð eftir nafni fyrsta höfundar hvers verks eins og það er skráð í heimildaskránni (ritstjóri eða titill geta í sumum tilvikum komið í stað höfundar).
- Ef sami höfundur á fleiri en eina heimild í skránni raðast þær í tímaröð (elsta verkið fyrst).
- Ef sami höfundur á fleiri en eina heimild frá sama ári raðast þær eftir stafrófsröð titils og eru aðgreindar með a, b, c o.s.frv. Enskur ákveðinn greinir (the) hefur ekki áhrif á stafrófsröð.
- Heimildir eftir höfund einan raðast á undan þeim heimildum sem hann hefur samið með öðrum.
- Heimildir sem höfundur hefur samið með öðrum raðast eftir stafrófsröð næsta höfundar.
- Ef sömu höfundar (tveir eða fleiri) eiga fleiri en eina heimild er verkunum raðað í tímaröð, elsta heimildin fyrst.
- Ef sömu höfundar (tveir eða fleiri) eiga fleiri en eina heimild frá sama útgáfuári er heimildum raðað eftir stafrófsröð titils.
- Við stafrófsröðun er ekki tekið mið af ákveðnum og óákveðnum greini (í ensku: a, an, the; í norrænum málum: en, den).
- Hver heimild er sett upp með fyrstu línu hangandi.
- Milli heimilda er aukið línubil – ekki auka línubil.
- Það á ekki að tölusetja heimildir í heimildaskrá samkvæmt APA staðli.