Tilvitnanir
Tilvitnun er efni eða efnisatriði sem fengið er úr heimild. Hlutverk tilvitnana er að útskýra og rökstyðja hugmyndir höfundar og tengja þær við það sem áður hefur verið gert, hugsað og skrifað.
Oftast er vitnað til:
- Ákveðins efnisatriðis (óbein tilvitnun)
- Orðalags (bein tilvitnun)
- Myndefnis af ýmsum toga (ljósmyndir, teikningar, töflur, gröf o.fl.).
Tilvitnanir geta verið langar eða stuttar og ákveðnar reglur gilda um uppsetningu hvors tveggja.
Gæði fræðilegra skrifa liggja fyrst og fremst í því hversu vel höfundi tekst að flétta saman eigin hugmyndir við hugmyndir annarra, með rökstuðningi og vísun í önnur verk.