Ártöl í tilvísunum
Ef vísað er til tveggja eða fleiri verka sama höfundar í einni tilvísun skal skrá nafn höfundar og útgáfuár heimilda með kommu á milli.
Raða verkunum eftir útgáfuári, það elsta fyrst.
(Bandura, 1986, 1997)
Dæmi
Ef vísað er til tveggja eða fleiri verka sama höfundar frá sama útgáfuári þarf að aðgreina verkin með bókstaf fyrir aftan útgáfuárið.
Þessi aðgreining er gerð í heimildaskránni sjálfri og er verkunum raðað eftir stafrófsröð titla.
(Dagný Kristjánsdóttir, 2001a, 2001b)
(Bandura, 1986a, 1986b, 1986c)
Ef vísað er til tveggja eða fleiri heimilda í sama tilvísunarsviga skal hafa nöfn þeirra í stafrófsröð, sömu röð og þau koma fyrir í heimildaskrá, og aðgreina þá með semíkommu (;).
(Bandura, 1997; Ragnhildur Bjarnadóttir, 2008; Sigrún Aðalbjarnadóttir, 2002)