Ritstífla

Flestir hafa lent í því að setjast fyrir framan tölvuskjá og stara á hann lengi án þess að geta skrifað nokkuð. Ástæður ritstíflu geta verið misjafnar og ráð gegn ritstíflu fara nokkuð eftir ástæðunni.

Stundum eru margar ómótaðar hugmyndir í kollinum sem erfitt er að koma í orð eða að fólk festist í sömu hugmyndinni og kemst ekki áfram. Oft getur lausnin einfaldlega verið fólgin í því að tala við einhvern sem gæti haft skilning á vandanum og komið með ábendingar eða spurningar.

 

Vandamál og lausnir

Hugmyndin er óljós og þú þarft að eyða meiri tíma í hugmyndavinnu og beinagrind

Reyndu að finna flöt á efninu sem tengist betur þínu áhugasviði eða lífsreynslu.

Til dæmis skilur þú ekki þá fræðikenningu sem ritgerðin á að snúast um.

Reyndu að finna aðgengilega umfjöllun um þessa kenningu, til dæmis blogg, myndbönd, umfjöllun á Wikipedia eða kennsluefni.

Þetta getur verið mjög gagnlegt þótt fæst af þessu sé nothæft sem eiginlegar heimildir.

Ýmsar slökunaræfingar geta verið gagnlegar eða öndunaræfingar.

Eitt ráð er að búa til ákveðnar skrifvenjur,til dæmis að hlusta á rétta tónlist eða vera þar sem er þögn og næði.

Hefur þú sífelldar áhyggjur af því að textinn sé ekki nógu góður?

Líttu á textann sem uppkast sem hægt er að bæta og hafðu ekki áhyggjur af gæðum textans fyrr en í lokin.

Þú sérð ekki fyrir þér hvernig á að skrifa langan texta um viðfangsefnið.

Skiptu skrifunum niður í skref og einbeittu þér að einu skrefi í einu (til dæmis kafla og undirkafla).

Ef þú festist í einum hluta skaltu geyma hann og byrja á öðrum.

Þú ætlar að byrja á fyrstu blaðsíðu ritgerðarinnar en ekkert gerist.

Prófaðu að byrja á einhverjum kafla inn í miðri ritgerð og geymdu byrjunina þar til síðar. Þegar ritgerðin er tilbúin skiptir engu máli í hvaða röð hún var skrifuð.

Er hugurinn reikar og erfitt er að halda einbeitingu? 

Þetta vandamál hefur aukist mikið með tilkomu snjallsíma og samfélagsmiðla. Nokkur ráð má reyna gegn þessu.

  • Hafið símann hljóðlausan og á hvolfi svo skjárinn kalli ekki á athygli

Til eru ýmis forrit sem geta lokað ákveðnum síðum í tölvunni í ákveðinn tíma (til dæmis SelfControl). Stillið forritið á 30-60 mín. Þegar tíminn er liðinn má taka 5-10 mínútna hlé og skoða helstu miðla áður en forritið er stillt á ný.

Önnur leið er einfaldlega að loka tölvunni, taka fram blað og penna og skrifa um stund allt sem þér dettur í hug og endurskrifa síðan í tölvu.